RÚV 16.08.2022
Á Akureyri er í boði vinnuaðstaða fyrir frumkvöðla með nýsköpunar- og frumkvöðlaverkefni á byrjunarstigi og hún talin góð lyftistöng til að þróa áfram hinar ýmsu hugmyndir.
Styrkir frumkvöðla og AkureyrarAkademíuna
Vinnuaðstaðan er á vegum AkureyrarAkademíunnar í samstarfi við Akureyrarbæ. „Markmiðið er tvennskonar. Í fyrsta lagi er þetta hugsað sem stuðningur við frumkvöðlana og hins vegar stuðningur við starfsemi AkureyrarAkademíunnar,“ segir Aðalheiður Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri AkureyrarAkademíunnar.
Viðskiptalausnir á netinu algengasta viðfangsefnið
Verkefninu hefur verið haldið úti frá því í maí í fyrra og hefur reynst vel. „Þeir sem hafa hingað til verið hjá okkur hafa aðallega verið að vinna að því að þróa ýmsar viðskiptalausnir á netinu fyrir stofnanir og fyrirtæki með það fyrir augum að fara síðan seinna út í fyrirtækjarekstur á þessu sviði,“ segir Aðalheiður.
Fyrst og fremst hugsað fyrir verkefni á frumstigi
Þórgnýr Dýrfjörð, forstöðumaður atvinnu- og menningarmála hjá Akureyrarbæ, segir aðstöðu sem þessa geta breytt miklu fyrir fólk með verkefni á frumstigi. „Þetta eru oft einstaklingar sem eru þá vinnandi heima hjá sér eða ekki í samfélagi og hafa ekki aðgang að reglulegum vinnustað eða vinnutíma. Það getur bara skipt mjög miklu máli að fá þessa festu og hafa þá tækifæri til þess í hálft ár án þess að borga fyrir,“ segir hann.
Þórgnýr vonar að í framtíðinni verði hægt að setja á fót samvinnumiðstöð á Akureyri sem væri vettvangur fyrir frumkvöðla, en líka fólk sem vinnur heima.